Leyfis- og notendaskilmálar
1. Efni og gildissvið
Leyfis- og notendaskilmálar þessir („skilmálar") gilda um notendaleyfi að hugbúnaðinum „Rektor" (einnig vísað til „kerfisins"), hýsingu þess og aðstoð við uppsetningu.
Rektor er í eigu félagsins Rektor AI ehf., kt. 591125-0440 („Rektor" eða „félagið"), og með samþykki viðskiptavinar á skilmálum þessum kemst á samningur milli viðskiptavinar og félagsins.
Þá gilda skilmálar þessir einnig um alla notkun þeirra einstaklinga sem nota kerfið á vegum viðskiptavinar („notendur").
Í skilmálum þessum er sameiginlega vísað til félagsins og viðskiptavinar sem „aðila", eftir því sem við á.
2. Mánaðargjald
Gegn greiðslu á umsömdu mánaðargjaldi fær viðskiptavinur leyfi til að nota Rektor, sbr. grein 3 í skilmálum þessum, og félagið skuldbindur sig til að veita viðskiptavin þá þjónustu sem tilgreind er í grein 4 í skilmálunum.
Mánaðargjald fer eftir verðskrá félagsins sem finna má á heimasíðu þess, en mánaðargjald miðast við fjölda notenda kerfisins.
Mánaðargjald skal greitt fyrirfram.
Viðskiptavinur getur fjölgað notendum innan mánaðar og hlutfallast þá greiðslur mánaðargjalda í samræmi við uppfærslu á áskriftarleið. Vilji viðskiptavinur fækka notendum miðast slík breyting við næstu mánaðarmót eftir að tilkynning berst félaginu.
Á reikningi er gjalddagi tilgreindur og er eindagi 14 dögum síðar. Ef mánaðargjald er ekki innt af hendi á eindaga reiknast á það dráttarvextir í samræmi við 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
3. Hugverkaréttur og leyfi
Allur hugverkaréttur að kerfinu og tengdu efni, s.s. handbókum o.fl., sem félagið hefur þróað eða er rétthafi að, skal tilheyra félaginu eða viðeigandi þriðja aðila. Undir hugverkarétt fellur m.a. allur höfundaréttur, vörumerkjaréttur, hönnunarréttur, einkaleyfisréttur og eignaréttur að atvinnuleyndarmálum eða sérþekkingu, sem tengjast kerfinu. Slíkt hið sama gildir um allar þær viðbætur sem félagið kann að bæta við kerfið og þjónustuna á meðan viðskiptasambandi aðila stendur. Ekkert framsal á hugverkaréttindum á sér stað á grundvelli skilmálanna.
Að því marki sem kerfið byggir á hugbúnaði þriðja aðila, þ.m.t. opnum hugbúnaði (e. open source software), er réttur notenda háð þeim leyfisskilmálum sem gilda um viðkomandi hugbúnað. Gegn greiðslu mánaðargjalda fær viðskiptavinur leyfi til að nota kerfið á meðan samningur aðila er í gildi.
Kerfið er annars vegar hugbúnaður sem viðskiptavinur getur nálgast í gegnum tölvu og hins vegar smáforrit sem viðskiptavinur getur nýtt í gegnum farsíma eða spjaldtölvu.
Um er að ræða skýjaþjónustulausn, sem felur það í sér að aðgangur viðskiptavinar og notenda hans er í gegnum veraldarvefinn og félagið sér um alla hýsingu.
Kerfið felur í sér hugbúnað sem nýtist verktökum og öðrum við að búa til og fylgjast með tilboðum og verkefnum. Eiginleikum kerfisins er nánar lýst á vefsíðu félagsins. Hluti af virkni kerfisins byggir á notkun gervigreindar. Félagið nýtir þannig m.a. gervigreindartól þriðju aðila til að greina gögn notenda sem hluti af virkni kerfisins, að undanskildum persónugreinanlegum upplýsingum.
Félagið kann einnig að bæta við frekari eiginleikum við kerfið síðar sem viðskiptavinir hafa val um að nýta.
Notkun kerfisins skal eingöngu vera við eigin rekstur viðskiptavinar. Í leyfi viðskiptavinar felst réttur til að leyfa skilgreindum fjölda starfsmanna og/eða verktaka sem koma að rekstri viðskiptavinar aðgang að kerfinu. Þá er einnig gert ráð fyrir aðgangi bókara viðskiptavinar að kerfinu.
Viðskiptavin er með öllu óheimilt að fela óviðkomandi þriðja aðila notkun á kerfinu og ber viðskiptavinur ábyrgð á allri notkun notenda að kerfinu gagnvart félaginu.
4. Þjónusta Rektor
Gegn greiðslu á umsömdu mánaðargjaldi tekur Rektor að sér aðstoð við uppsetningu á kerfinu og grunnaðstoð við kennslu á kerfið. Fari slík aðstoð fram yfir þrjár klukkustundir skal viðskiptavinur þó greiða fyrir hana í samræmi við gjaldskrá félagsins.
Gegn greiðslu tímagjalds skv. verðskrá félagsins getur það einnig tekið að sér viðbótarþjónustu, s.s. tæknilega aðstoð, sérstaka kennslu á kerfið og aðlögun fyrir viðskiptavin eftir því sem við á.
Í mánaðargjaldi felast reglulegar uppfærslur, eftir því sem Rektor ákveður að ráðast í hverju sinni.
Ef nauðsynlegt er vegna viðhalds er félaginu heimilt að rjúfa samband viðskiptavinarins við kerfið. Tilkynna skal um slíkt til viðskiptavinar með hæfilegum fyrirvara ef hægt er. Félagið skal þó leitast við að takmarka slíkt rof og haga viðhaldi þannig að það hafi sem minnst áhrif á viðskiptavin.
5. Notendaskilmálar
Til þess að nota kerfið býr notandi til notandanafn og lykilorð. Notendur bera einir ábyrgð á því að tryggja leynd slíkra aðgangsupplýsinga sinna.
Notendum er óheimilt að afrita, breyta, endurútgefa, dreifa, birta eða veita óviðkomandi aðilum aðgang að kerfinu, í heild eða hluta, reyna að rekja frumkóða þess eða á nokkurn hátt brjóta gegn hugverkaréttindum félagsins.
Notendur skulu nota kerfið í samræmi við leiðbeiningar félagsins og í þeim tilgangi sem skilmálar þessir gera ráð fyrir.
6. Lokun á aðgangi
Rektor hefur heimild til þess að grípa til allra hugsanlegra aðgerða sem teljast geta verið nauðsynlegar vegna brota gegn skilmálum þessum. Rektor getur í því sambandi einhliða lokað aðgangi viðskiptavinar og notenda að kerfinu.
7. Gögn viðskiptavinar
Viðskiptavinur er eigandi allra gagna og upplýsinga sem unnið er með og til verða í kerfinu, hvað varðar notkun hans og þeirra notenda sem hann veitir aðgang að kerfinu.
Viðskiptavinur ábyrgist að hann hafi heimild til þess að ráðstafa öllum þeim upplýsingum sem settar eru inn í kerfið og að notendum sé það ljóst að samningssamband félagsins er aðeins við viðskiptavin.
Á grundvelli þessara skilmála veitir viðskiptavinur Rektor heimild til þess að vinna ópersónugreinanlegar upplýsingar úr kerfinu í þeim tilgangi að bæta virkni, viðmót og afköst kerfisins sem og í þeim tilgangi að taka saman samantektir og tölfræðiupplýsingar sem nýst geta viðskiptavinum.
Með vinnslu ópersónugreinanlegra upplýsinga áskilur Rektor sér einnig rétt til þess að þróa kerfið og tengdar þjónustur sem og bæta við frekari virkni við kerfið sem gerir viðskiptavinum kleyft að nýta upplýsingar sínar, s.s. með notkun gervigreindar, í framtíðarverkefnum t.a.m. við gerð nýrra tilboða.
8. Vinnsla persónuupplýsinga
Viðskiptavinur telst ábyrgðaraðili að þeim persónuupplýsingum sem unnið er með í kerfinu, í skilningi persónuverndarlaga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Rektor skal með sama hætti teljast vinnsluaðili þeirra upplýsinga í tengslum við hýsingu og tæknilega aðstoð.
Um vinnslu félagsins á persónuupplýsingum fyrir hönd viðskiptavinar gilda vinnslusamningsskilmálar félagsins sem teljast hluti af þessum skilmálum og viðskiptavinur samþykkir jafnframt með samþykki á skilmálum þessum.
9. Samskipti
Rektor áskilur sér rétt til að senda viðskiptavin með tölvupósti, eða tilkynningu á aðgangi viðskiptavinar í kerfinu, upplýsingar um allar þær nýjungar sem kunna að bætast við kerfið og þjónustuna.
Rektor áskilur sér jafnframt rétt til að senda viðskiptavin og notendum fréttabréf með tölvupósti, sem og upplýsingar um nýjar vörur og þjónustur félagsins og annarra félaga innan sömu samstæðu. Viðskiptavinur og notendur geta þó alltaf afþakkað slíkar sendingar.
10. Takmarkanir á bótaskyldu
Rektor ábyrgist ekki að kerfið sé villufrítt.
Fjárhæð skaðabóta vegna hugsanlegrar bótaskyldu félagsins á grundvelli þessara skilmála skal undir engum kringumstæðum nema hærri fjárhæð en jafnvirði sex (6) mánaða þjónustugjalds sem viðskiptavinur hefur greitt félaginu.
Undir engum kringumstæðum skal félagið vera ábyrgt vegna óbeins eða afleidds tjóns.
Um skaðabótaábyrgð aðila gilda að öðru leyti almennar reglur kröfu- og skaðabótaréttar.
11. Trúnaðarskylda
Aðilar skulu virða sem trúnaðarmál þær upplýsingar sem þeir kunna að öðlast í samningssambandi aðila, m.a. um viðskiptamenn, viðskiptasambönd, rekstur, starfsemi, fjármál, og viðskiptahætti beggja aðila, enda séu þau ekki almennt þekkt eða hafi verið gerð opinber. Trúnaðarskyldan skal haldast þrátt fyrir uppsögn eða riftun á þjónustu og samningi aðila.
12. Gildistími, uppsögn og riftun
Samningur aðila skal vera ótímabundinn en báðir aðilar skulu hafa heimild til þess að segja samningnum upp með þriggja mánaða fyrirvara.
Tilkynning um uppsögn skal vera skrifleg og send með sannanlegum hætti. Uppsögn skal taka gildi um næstu mánaðarmót frá því að tilkynning berst gagnaðila.
Í tilviki verulegra vanefnda á skyldum aðila, s.s. í tilviki greiðslufalls, skulu aðilar hafa heimild til þess að rifta samningnum ef gagnaðili verður ekki við áskorun um að bæta úr vanefnd innan 14 daga frá því að áskorun þess efnis er send gagnaðila.
13. Túlkun og ágreiningsmál
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.
Allur ágreiningur, deilur eða kröfur sem kunna að rísa vegna eða í tengslum við þá sem aðilar geta ekki leyst úr sín á milli skal vísa til Héraðsdóms Reykjavíkur.
14. Annað
Rektor áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða reglugerðum eða vegna breytinga á þjónustunni.
Rektor skal upplýsa viðskiptavin um allar breytingar á skilmálunum. Verði gerðar breytingar á skilmálunum sem hafa veruleg áhrif á réttindi og skyldur viðskiptavinar skulu slíkar breytingar ekki taka gildi fyrr en að ákveðnum tíma liðnum og samþykki viðskiptavinur ekki slíkar breytingar skal hann hafa rétt til að segja upp þjónustunni.
Óheimilt er að afrita skilmála þessa í heild eða hluta og nýta í öðrum tilgangi en í tengslum við samningssamband aðila.
Skilmálar þessir tóku gildi 11. mars 2026