Eiginleikar

GervigreindSpyrðu Rektor um reksturinn

Hvernig gengur verkið á Hæðasmára? Hverjir eru mættir í dag? Svörin við svona spurningum eru dreifð um skýrslur og töflur, en Rektor finnur þau á nokkrum sekúndum.

Þú getur líka beðið hann að búa til tilboð, skrá aukaverk eða bóka skoðun. Hann sýnir þér fyrst hvað hann ætlar að gera og ekkert breytist fyrr en þú staðfestir.

Það sem þú færð

  • Spyrðu á íslensku, ensku eða öðru tungumáli
  • Svörin koma úr nýjustu gögnunum í Rektor
  • Verkstaða, tímar og framlegð á nokkrum sekúndum
  • Láttu Rektor búa til tilboð, skrá aukaverk, bóka skoðanir og færa nótur á verkefni, og staðfestu áður en nokkuð breytist

Hvernig þetta virkar

Það sem þú getur spurt um

Rektor sækir svörin í gögn fyrirtækisins þíns á meðan þú bíður og sýnir hvað hann er að skoða. Þetta eru gögnin sem hann nær í:

  • VerkefniStaða, framvinda, dagsetningar, einingar, starfsfólk, skjöl, athugasemdir og verk sem eru á eftir áætlun.
  • StarfsfólkHver er stimplaður inn og hvar, hver ætti að vera að vinna, frí, unnar stundir, laun og afköst miðað við meðaltal.
  • FjármálTekjur, kostnaður og framlegð vikunnar, framlegð og kostnaður hvers verkefnis, hvað er eftir að rukka og ógreiddir reikningar eftir aldri.
  • Stærri greiningarBiddu Rektor að bera saman framlegð allra verka ársins eða fara yfir öll ósvöruð tilboð. Hann skoðar hvert verk eða tilboð fyrir sig og dregur niðurstöðurnar saman í eitt svar.
  • HjálparefniSpurningum um hvernig Rektor virkar er svarað út frá hjálpargreinunum, með réttum heitum á hnöppum.
Það sem þú getur spurt um

Það sem Rektor getur gert fyrir þig

Rektor ræður ekki við allt í kerfinu, en þetta getur þú beðið hann um á venjulegu máli:

  • Tilboð og verkefniStofna tilboð, fyrirspurn eða verkefni án tilboðs, bæta línum við tilboð sem hefur ekki verið sent, samþykkja tilboð handvirkt, bæta við aukaverki og senda tilboð á viðskiptavin.
  • SkipulagBreyta áætluðum dagsetningum, líka út frá því hve marga virka daga verkið tekur, setja starfsfólk á verk og í bíla, skipta út starfsmanni sem er í fríi, bóka og færa skoðanir og stofna eða segja upp þjónustusamningum.
  • Kostnaður og verkþættirSkrá kostnað á verkefni beint af nótu sem þú hengir við, með álagningu, og nótan vistast með. Setja verkþætti á verkefni, staka eða úr sniðmáti.
  • Tímaskráning og fríSkrá, leiðrétta og eyða stimplunum, samþykkja eða hafna fríbeiðnum og skrá frí.
  • StillingarBreyta stillingum fyrirtækisins og appsins, til dæmis yfirvinnuhlutfalli, stimplunarmáta og hvaða verkefni starfsfólkið sér í appinu.
  • ReikningarSkrá greiðslu á sendan reikning og breyta stöðu reiknings. Ef DK eða Payday er tengt getur hann líka sent reikninga og kostnað í bókhaldið og kreditfært reikninga í DK.

Ekkert breytist fyrr en þú staðfestir

Þegar þú biður Rektor að gera eitthvað birtist staðfestingarspjald sem bíður samþykkis þíns í stað þess að aðgerðin sé keyrð strax. Spjaldið sýnir nákvæmlega hvað verður gert.

  • Ef Rektor vantar upplýsingar giskar hann ekki, heldur spyr með stuttu eyðublaði fyrir ofan innsláttarreitinn.

Talaðu, lestu yfir, sendu

Það sem þú segir verður að texta í innsláttarreitnum. Ekkert er sent fyrr en þú ýtir á senda, svo þú getur lagað orð áður.

  • Umritunin þekkir orðaforða verktaka, eins og tilboð, eining, magn, úttekt og undirverktaki.
  • „Skráðu Jón á Hæðasmára frá átta til fjögur í gær“
  • „Bókaðu skoðun á Álfhólsvegi á fimmtudaginn klukkan tíu“

Skrár, skipulag og minni

Rektor vinnur með meira en texta. Hann les skjölin sem þú sendir honum og tekur tillit til aðstæðna þegar hann leggur eitthvað til.

  • Hengdu við myndir, PDF, Word-skjöl, CSV, Excel- eða Numbers-skrár, til dæmis verðlista, verklýsingu eða teikningu.
  • Biddu Rektor um gögnin í Excel, til dæmis öll verkefni í gangi með upphæðum, og þú sækir tilbúna skrá beint úr spjallinu.
  • Sendu Rektor verkáætlun í Excel og hann stofnar verkin sem verkefni, með lýsingu, dagsetningum og starfsfólkinu sem á að vinna þau. Þú staðfestir áður en nokkuð er vistað.
  • Sendu Rektor skrá yfir eldri verk og hann stofnar þau öll sem verkefni í einu, hverja línu með einingu, verði og VSK úr skránni, svo þú þarft ekki að setja upp verðskrána fyrst. Verk sem endurtekur sig, til dæmis sláttur á tveggja vikna fresti, verður að einum þjónustusamningi í stað margra verkefna.
  • Sendu Rektor starfsmannalista og hann býður öllum í Rektor í einu, með hlutverki, launum og tungumáli hvers og eins á einu staðfestingarspjaldi.
  • Þegar hann leggur til hvenær verk ætti að hefjast tekur hann mið af bókunum starfsfólks, samþykktu fríi og veðurspá á staðnum allt að 16 daga fram í tímann.
  • Rektor þekkir fyrirtækið þitt úr gögnunum í hverju spjalli, til dæmis hvaða einingar þú notar mest, og man það sem þú biður hann sérstaklega að muna.

Persónuvernd

Áður en spurningin þín og gögnin sem Rektor sækir fara til gervigreindarlíkansins er persónuupplýsingum skipt út fyrir auðkenni. Raunverulegu gildin eru sett aftur inn í svarið sem þú sérð.

  • Þetta á við um nöfn starfsfólks og viðskiptavina, netföng, símanúmer og kennitölur.

Náðu stjórn á rekstrinum

Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.

14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn