RauntímayfirlitSkýrslurnar sem reksturinn þarf
Verkefnaskýrsla, starfsmannaskýrsla og launaskýrsla byggja allar á sömu stimplunum og einingum, svo tölunum ber alltaf saman.
Það sem þú færð
- Verkefnaskýrsla: raun og áætlun hlið við hlið, framlegð og unnið verðmæti á hverju verki
- Starfsmannaskýrsla: tímar, yfirvinna og verðmæti hvers starfsmanns á tímabili
- Launaskýrsla: venjulegar stundir, yfirvinna, launað frí og heildarlaun fyrir launatímabilið
Hvernig þetta virkar
Verkefnaskýrsla: raun á móti áætlun
Ein lína á hvert verkefni með tekjum, kostnaði og framlegð. Hver tala er sýnd sem raun / áætl, fyrst það sem hefur orðið og svo það sem tilboðið gerði ráð fyrir.
- KostnaðurRaunkostnaður er laun fyrir stimplaða tíma hvers starfsmanns, efniskostnaður kláraðra eininga og innkaup á verkefninu. Áætlun kemur úr einingum tilboðsins og innkaupunum.
- TímarUnnir tímar á móti áætluðum, svo þú sérð strax hvaða verk fara fram úr áætlun.
- Taktu skýrsluna saman eftir viðskiptavinum og sjáðu hvaða viðskiptavinir skila mestri framlegð.

Starfsmannaskýrsla
Unnir tímar, kostnaður og verðmæti hvers starfsmanns. Þú velur dag, viku eða mánuð, þar sem mánuðurinn fylgir launatímabilinu, og sérð samanburð við tímabilið á undan.
- VerðmætiÞað sem tímarnir skiluðu inn í verkefnin, miðað við verð eininganna sem unnið var að.

Launaskýrsla fyrir launatímabilið
Launaskýrslan tekur saman stimplanir og launakjör fyrir eitt launatímabil, með einni línu á hvern starfsmann og samtölum neðst, svo enginn þarf að leggja tímana saman í höndunum.
- Samþykkt launað frí er reiknað með út frá vinnuáætlun.
- Allir 16 íslensku rauðu dagarnir eru reiknaðir sjálfkrafa, líka páskar, og vinna á þeim telst yfirvinna.

Stimplanir í Excel
Sæktu allar stimplanir tímabils sem CSV-skrá, af stimplanasíðunni eða úr starfsmannaskýrslunni, til dæmis fyrir launafulltrúa eða endurskoðanda.

Náðu stjórn á rekstrinum
Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.
14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn