Fyrirspurnir úr tölvupóstiFrá tölvupósti til tilboðs
Fyrirspurnir týnast auðveldlega í pósthólfinu. Rektor gefur þér netfang fyrir fyrirspurnir og hver póstur sem berst á það verður að fyrirspurn, með nafni, netfangi og símanúmeri viðskiptavinarins, heimilisfangi verksins og myndunum sem fylgja póstinum.
Svo les Rektor fyrirspurnina og stingur upp á næsta skrefi. Þegar hægt er að verðleggja verkið gerir hann drög að tilboði, verðlögð eins og þú verðleggur venjulega og byggð á sambærilegum tilboðum sem þú hefur sent. Þú ferð yfir drögin og sendir tilboðið.
Það sem þú færð
- Eigið netfang sem tekur við fyrirspurnum af vefsíðunni og áframsendum pósti
- Viðskiptavinurinn, heimilisfangið og myndirnar skráð sjálfkrafa
- Drög að tilboði, verðlögð eins og fyrri tilboðin þín
- Svör viðskiptavinarins bætast við sömu fyrirspurn
Hvernig þetta virkar
Fyrirspurnir berast beint inn
Rektor gefur þér netfang fyrir fyrirspurnir. Láttu fyrirspurnaformið á vefsíðunni þinni senda á það eða áframsendu póst frá viðskiptavini, og hver póstur verður að fyrirspurn í Rektor.
- Nafn, kennitala, netfang og símanúmer viðskiptavinarins og heimilisfang verksins eru lesin úr póstinum og skráð, líka úr fyrirspurnaformum á vefsíðum.
- Rektor les líka hvaða verk er beðið um, til dæmis tegund vinnu, stærð og tímasetningu, og fyrirspurnin fær heiti eftir verkinu.
- Ef viðskiptavinurinn er þegar skráður í Rektor tengist fyrirspurnin honum í stað þess að nýr viðskiptavinur verði til.
- Myndir og teikningar sem fylgja póstinum vistast með fyrirspurninni.
- Ef viðskiptavinurinn svarar bætist svarið við sömu fyrirspurn í stað þess að ný verði til.
- Þú færð tilkynningu um hverja nýja fyrirspurn, svo engin týnist í pósthólfinu.
Drög að tilboði
Rektor les hverja nýja fyrirspurn og stingur upp á næsta skrefi, til dæmis verðlögðum drögum að tilboði.
- Drögin eru verðlögð eins og þú verðleggur venjulega, hvort sem það er fast verð, einingar úr verðskránni eða tímavinna, og byggjast á sambærilegum tilboðum sem þú hefur sent. Þú ferð yfir þau áður en nokkuð fer til viðskiptavinarins.
- Með einum smelli færast línurnar og verklýsingin yfir í tilboðið, þar sem þú getur breytt öllu áður en þú sendir það.
- Ef verkið þarf skoðun fyrst stingur Rektor upp á að bóka hana, og ef upplýsingar vantar skrifar hann drög að svari til viðskiptavinarins.

Náðu stjórn á rekstrinum
Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.
14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn