Eiginleikar

Skoðanir á verkstaðSkoðun fyrst, tilboð svo

Fyrirspurn kemur inn, þú ferð á staðinn, tekur myndir og skrifar hjá þér punkta, og viku síðar er allt týnt í símanum. Í Rektor eru fyrirspurnin, skoðunin og tilboðið á sama stað.

Bókaðu skoðun með dagsetningu og heimilisfangi og sendu viðskiptavininum tímann. Hann staðfestir með einum smelli eða biður um annan tíma í spjalli við þig, og skoðunin birtist á tímalínunni við hlið verkefnanna.

Það sem þú færð

  • Fyrirspurnir úr tölvupósti og af vefsíðunni berast beint inn í Rektor
  • Viðskiptavinurinn fær tillögu að tíma og staðfestir hana með einum smelli
  • Hentar tíminn ekki? Þú færir skoðunina á tímann sem viðskiptavinurinn skrifar í spjallið
  • Fyrirspurn → skoðun → tilboð → verkefni, allt í einni keðju

Hvernig þetta virkar

Skoðun bókuð á mínútu

Ný skoðun þarf aðeins dagsetningu, tíma og heimilisfang eða nafn viðskiptavinar. Allt annað er valfrjálst, svo þú getur bókað á meðan viðskiptavinurinn er enn í símanum.

  • Heimilisfangið finnurðu með leit og staðsetningin birtist á korti á skoðuninni.
  • Rektor finnur viðskiptavini sem þú hefur áður skráð og fyllir út upplýsingarnar, svo fastur viðskiptavinur er ekki skráður tvisvar.

Viðskiptavinurinn staðfestir tímann

Viðskiptavinurinn fær tillögu að tíma í tölvupósti, í nafni fyrirtækisins þíns, og staðfestir hana með einum smelli. Þú sérð strax á skoðuninni hvort tíminn stendur.

  • Ef tíminn hentar ekki skrifar viðskiptavinurinn í spjallið hvað hentar betur. Rektor les tímann úr skilaboðunum og þú færir skoðunina þangað með einum smelli.
  • Á meðan skoðunin er fram undan opnar hlekkur viðskiptavinarins hana fyrst, og tilboðið er einum smelli frá.
  • Viðskiptavinurinn sér hvenær, hvar og hver kemur, og setur skoðunina beint í Google-, Outlook- eða Apple-dagatal.
  • Þú færð tilkynningu um leið og viðskiptavinurinn svarar.

Á tímalínunni með verkefnunum

Skoðanir birtast á tímalínunni við hlið verkefnanna, svo þú sérð vikuna í heild á einum stað.

  • Dragðu skoðun til á tímalínunni til að færa hana, og sendu viðskiptavininum nýja tímann.

Frá skoðun að tilboði

Skoðunin er tengd verkinu, svo tilboðið byrjar þar sem skoðunin endaði.

  • Titill og upplýsingar um viðskiptavin fylgja áfram, svo ekkert er slegið inn tvisvar.
  • Skoðun má líka bóka á þjónustusamning, til dæmis til að skoða garðinn áður en þú sendir samninginn.

Náðu stjórn á rekstrinum

Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.

14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn