Eiginleikar

StimpilklukkaStimplun sem gleymist ekki

Gleymd stimplun kostar peninga og enginn nennir að eltast við tíma starfsmanna eftir á. Rektor setur 200 metra verkgirðingu um hvert verk og minnir starfsfólkið á að stimpla sig inn og út. Ef þú vilt getur Rektor líka stimplað það sjálfkrafa inn við komu.

Kort af verkstað með sýndargirðingu (geofence) fyrir sjálfvirka GPS-stimpilklukku

Það sem þú færð

  • Áminning um að stimpla sig inn við komu á verkstað
  • Tilkynning við útstimplun ef starfsmaður var lengur utan verkgirðingar en þú leyfir
  • Enginn ferill er skráður, aðeins staðsetning við inn- og útstimplun og hvenær starfsmaður kom á verkstað og fór
  • Yfirvinna reiknast sjálfkrafa út frá vinnuáætlun hvers starfsmanns

Hvernig þetta virkar

Fjórir stimplunarmátar

Starfsfólkið stimplar sig annaðhvort inn og út á hvert verkefni, einu sinni inn á dag og skiptir deginum á verkefni við útstimplun, eða skráir tímana eftir á. Þú velur hvað hentar fyrirtækinu og hvort starfsfólkið má laga eigin tíma.

Verkgirðing um hvern verkstað

Rektor setur sjálfkrafa 200 metra hring utan um hvert samþykkt eða virkt verkefni sem hefur heimilisfang með hnitum. Þú þarft ekkert að teikna, bara velja heimilisfangið úr leitinni.

  • KomutilkynningÞegar starfsmaður kemur inn á svæðið fær hann „Þú ert á verkstaðnum. Stimpla inn?“ og verkefnið er þegar valið þegar hann opnar appið úr tilkynningunni.
  • BrottfararáminningÞegar hann fer af svæðinu fær hann „Þú hefur yfirgefið verkstaðinn. Stimpla út?“ svo gleymd útstimplun uppgötvast strax.
  • Tími á röngu verkiEf starfsfólk fer af einum verkstað og stimplar sig út á öðrum verkstað fyrirtækisins færðu að vita það, svo þú getir fært tímann á rétt verkefni.
  • Rektor skráir ekki feril starfsmanna. Vistuð eru hnit við inn- og útstimplun og tíminn sem starfsmaður kom inn á verkstaðinn og fór af honum.
  • Viltu enga verkgirðingu? Slökktu á greiningu á verkstað og appið biður aldrei um staðsetningu í bakgrunni.
Verkgirðing um hvern verkstað

Sjálfvirk innstimplun við komu

Valkvæð stilling sem stimplar starfsfólk inn um leið og það kemur inn í verkgirðinguna, í stað þess að spyrja fyrst. Slökkt er á henni þar til þú kveikir á henni.

  • Þú velur hvort allir sem koma á verkstaðinn eru stimplaðir inn eða aðeins þeir sem eru skráðir á verkefnið.
  • Stimplun sem hófst sjálfkrafa lokast líka sjálfkrafa þegar starfsmaðurinn fer af svæðinu.

Yfirvinna reiknuð sjálfkrafa

Yfirvinna reiknast við útstimplun út frá vinnuáætlun hvers starfsmanns, svo enginn þarf að telja hana saman í lok mánaðar.

  • Hver starfsmaður getur haft sína eigin vinnuáætlun.
  • Vinna um helgar og á íslenskum rauðum dögum telst yfirvinna.

Leiðréttingar stjórnenda

Allar stimplanir birtast jafnóðum í vefstjórnborðinu, eftir degi, viku eða mánuði. Þú getur lagfært stimplanir, bætt nýjum við og eytt þeim, og breytingin fer strax í skýrslur og laun.

  • Gleymdi einhver að stimpla sig? Þú skráir tímann fyrir hann.
  • Á hverri stimplun sérðu staðsetningu á korti, myndir og sögu allra breytinga.

Náðu stjórn á rekstrinum

Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.

14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn