Hagnaður og stýringVerð sem heldur í við kostnaðinn
Kostnaðurinn breytist stöðugt. Laun hækka og efnið verður dýrara, og tilboð sem skilaði hagnaði fyrir þremur mánuðum gerir það kannski ekki í dag.
Rektor sýnir þér áætlaðan hagnað á hverju tilboði áður en þú sendir það og varar við ef verkið stefnir í tap eða framlegðin er lág. Þú getur líka prófað sviðsmyndir og séð hve mikið þarf að hækka verðin til að mæta launahækkun.

Það sem þú færð
- Áætluð framlegð sýnd á hverju tilboði áður en það er sent
- Kostnaður reiknaður úr raunverulegum launum, yfirvinnu, einingakostnaði og efniskaupum á verkefnið
- Áætlun og raun bornar saman á hverju loknu verki
- Sviðsmyndir: prófaðu breytt verð eða launakostnað á öllum virkum verkum áður en þú ákveður
Hvernig þetta virkar
Hvað kostar verkið í raun
Rektor reiknar kostnað úr efniskostnaði eininganna, launum þeirra sem vinna verkið og innkaupum sem eru skráð á verkefnið. Launin koma úr launaskráningu hvers starfsmanns.
- Í launakostnaðinum eru launatengd gjöld eins og tryggingagjald og lífeyrisframlag, ekki bara tímakaupið.
Framlegðin áður en tilboðið fer út
Þegar þú sendir tilboð sérðu verkefnaáætlun. Þú slærð inn fjölda daga og starfsmanna og Rektor reiknar hvað verkið skilar. Viðskiptavinurinn sér ekki þessar tölur.
- Rauð viðvörun ef verkið er áætlað í tapi og gul ef framlegðin er lág, með ábendingu um að hækka verð, minnka afslátt eða endurskoða áætlunina.

Frá tilboði til verkloka
Framlegðin fylgir verkinu alla leið. Á tilboðinu og verkefninu sérðu hvert stefnir, og að verki loknu hvernig fór, með áætluninni til samanburðar.
- Við framvinduna sérðu unna tíma á móti áætluðum tímum, og þegar verkið er komið af stað hve langan tíma það tekur allt á sama hraða.
Rektor lærir af fyrri verkum
Þegar teymið skráir framvindu á einingar mælir Rektor hve langan tíma hver eining tekur í raun hjá þínu fyrirtæki. Sú reynsla nýtist í áætlunum á næstu verkum.
Hvað ef laun hækka?
Í skýrslunum prófar þú hvað verður um afkomuna ef þú breytir einingaverði eða laun hækka. Útreikningurinn byggir á áætlunum allra verkefna sem eru samþykkt eða í vinnslu.
- Rektor reiknar hve mikið þú þarft að hækka einingaverð til að halda núverandi framlegð eftir launahækkun.

Eftir á: hvert fór framlegðin?
Verkefnaskýrslan sýnir raunverulegar og áætlaðar tölur hlið við hlið, svo þú sérð hvar áætlunin stóðst og hvar ekki.
- Verkefni þar sem kostnaðurinn er kominn fram úr verðmæti unninnar vinnu skera sig úr, líka á meðan þau eru enn í gangi.


Náðu stjórn á rekstrinum
Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.
14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn