Eiginleikar

Tilboðssíða viðskiptavinarTilboð sem auðvelt er að svara

Viðskiptavinurinn fær tölvupóst með tengli á síðu þar sem tilboðið er sett upp skýrt: einingar, magn, verð, afsláttur og heildarupphæð með VSK. Hann getur sótt PDF ef hann vill.

Til að samþykkja smellir hann á hnappinn og staðfestir með kennitölu. Ef hann hafnar getur hann sagt hvers vegna, og ef tilboðið er runnið út getur hann beðið um framlengingu á sömu síðu.

Tilboðssíða viðskiptavinar — Viðskiptavinurinn opnar tilboðið í vafra, sér einingar, verð og gildistíma og samþykkir með einum smelli eða sendir þér spurningu af síðunni. Þú færð tilkynningu við hvert skref.

Það sem þú færð

  • Samþykkt með einum smelli og kennitölu greiðanda til staðfestingar
  • Höfnun með ástæðu svo þú vitir hvað stóð í vegi
  • Skilaboð beint af síðunni í stað símtala og SMS
  • Síðan verður að framvindusíðu verksins um leið og tilboðið er samþykkt

Hvernig þetta virkar

Það sem viðskiptavinurinn sér

Tilboðspósturinn sýnir liði tilboðsins, er með PDF-skjalið í viðhengi og hnapp sem opnar tilboðssíðuna í vafra. Engin innskráning og ekkert app.

  • Merki og nafn fyrirtækisins þíns efst, ásamt heiti verksins og hvenær tilboðið var sent.
  • Nafn, netfang og sími þess sem sendi tilboðið, svo viðskiptavinurinn viti við hvern hann á að tala.
  • Viðskiptavinurinn getur lesið síðuna á íslensku, ensku, pólsku, rússnesku eða norsku. Línurnar sem þú skrifar standa óbreyttar.
Það sem viðskiptavinurinn sér

Samþykkt með kennitölu

Samþykki tekur tvo smelli: „Samþykkja tilboð“ og svo staðfestingu þar sem heildarupphæðin kemur skýrt fram, eða tímagjaldið þegar rukkað er eftir unnum tímum.

  • Kennitalan vistast á viðskiptavininum og er notuð við reikningagerð, svo rétti greiðandinn er rukkaður.
  • Samþykkta tilboðið er vistað sem PDF með skjölum verkefnisins, merkt með nafni, kennitölu og tíma samþykkis, svo þú átt staðfestingu á því sem samið var um.
  • Viðskiptavinurinn fær staðfestingarpóst á sínu tungumáli með undirrituðu tilboðinu sem PDF í viðhengi, merktu nafni, kennitölu og tíma samþykkis.
Samþykkt með kennitölu

Höfnun, spurningar og framlenging

Ekki eru öll tilboð samþykkt strax. Síðan gefur viðskiptavininum leið til að segja nei eða spyrja, svo þú vitir hvar þú stendur.

  • Ef viðskiptavinurinn hafnar getur hann sagt hvers vegna, og ástæðan berst þér.
  • Spurningar fara í skilaboðaþráð við þig í stað símtala og SMS.
  • Ef tilboðið er runnið út biður viðskiptavinurinn um framlengingu með einum smelli.

Alltaf rétta útgáfan

Ef þú breytir tilboði og sendir það aftur á viðskiptavinurinn ekki að þurfa að giska á hvaða útgáfa gildir.

  • Opni hann eldri tölvupóst birtist viðvörun um að tilboðið hafi breyst, og síðan sýnir gildandi útgáfu.

Frá tilboði að verki

Sama slóð fylgir verkinu áfram, svo viðskiptavinurinn þarf aldrei nýjan tengil. Um leið og tilboðið er samþykkt verður síðan að framvindusíðu verksins.

Náðu stjórn á rekstrinum

Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.

14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn