Eiginleikar

Yfirsýn verkkaupaVerkkaupinn fylgist með án þess að hringja

Þegar tilboðið er samþykkt fær verkkaupinn sjálfkrafa síðu um verkið með framvindu, dagsetningum, áætluðum verklokum og tengilið. Hann þarf hvorki að skrá sig inn né stofna aðgang.

Síðan sýnir alltaf nýjustu stöðuna eftir því sem starfsfólkið stimplar inn, klárar verkþætti og þú breytir áætluninni. Ef hann hefur spurningu sendir hann skilaboð af síðunni og þú færð tilkynningu.

Það sem þú færð

  • Færri símtöl og skilaboð þar sem spurt er hvernig gangi
  • Framvindan uppfærist sjálf eftir því sem verkþættirnir klárast
  • Skilaboð beint af síðunni sem þú svarar úr Rektor
  • Aukaverk samþykkt á sömu síðu, alveg eins og tilboðið

Hvernig þetta virkar

Framvindusíða verksins

Þegar tilboðið er samþykkt breytist tilboðssíðan í framvindusíðu. Viðskiptavinurinn notar sama tengil og áður, án innskráningar.

  • HeildarframvindaHlutfall verksins sem er lokið, með framvindustiku.
  • Áætluð verklokÁætlaður lokadagur verksins efst á síðunni.
  • Framvinda yfir tímaGraf yfir síðustu 30 daga sem sýnir hvað vannst hvern dag og uppsafnaða framvindu.
Framvindusíða verksins

Þú ræður hvað sést

Viðskiptavinurinn sér heildarframvinduna. Í verkum sem eru mæld í einingum velur þú hvort hann sér líka framvindu hverrar einingar. Kostnaður og innri athugasemdir teymisins sjást aldrei á síðunni.

Framvindan kemur úr vinnunni sjálfri

Enginn þarf að uppfæra síðuna handvirkt. Hún byggir á því sem starfsfólkið skráir í appinu.

  • Starfsfólkið hakar við verkþætti í appinu, á meðan það er stimplað inn, við útstimplun eða eftir á.
  • Þegar allir verkþættir eru búnir merkir Rektor verkefnið sem lokið og viðskiptavinurinn sér 100%.
Framvindan kemur úr vinnunni sjálfri

Dagsetningar sem standast

Þegar áætlunin breytist sjást nýju dagsetningarnar á síðunni og þú velur hvort viðskiptavinurinn fær líka tölvupóst.

Skilaboð í stað símtala

Með einum hnappi á síðunni opnar viðskiptavinurinn skilaboðaþráð við þig, tengdan verkinu.

  • Skilaboð viðskiptavinarins berast þeim sem sendi tilboðið, bæði í kerfinu og í tölvupósti.
Skilaboð í stað símtala

Aukaverk á sömu síðu

Þegar þú biður um samþykki á aukaverki birtast tillögur að breytingum á síðunni. Viðskiptavinurinn samþykkir eða hafnar hverri línu, eða samþykkir allt í einu.

Náðu stjórn á rekstrinum

Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.

14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn