DK- og Payday-tengingBókhaldið þitt, óbreytt
Þú þarft ekki að skipta um bókhaldskerfi til að nota Rektor. Tengdu DK eða Payday einu sinni og eftir það fara einingar, verð og reikningar sjálfkrafa á milli.
Tilboð, verkefni og tímaskráning eru í Rektor. Reikningurinn fer í bókhaldið með gjalddaga og bankakröfu, og þegar hann er greiddur sérðu það í Rektor.

Það sem þú færð
- Flyttu inn einingar úr DK með verði og kostnaðarverði, úr Payday með verði, eða úr Excel
- Sæktu starfsmenn úr DK svo enginn þurfi að slá þá inn tvisvar
- Greiðslustaða og kreditnótur úr DK uppfærast daglega, eða strax með einum smelli
- Virkar líka án bókhaldskerfis: þú býrð einingarnar til í Rektor og gefur reikningana út þaðan
Hvernig þetta virkar
Tengt á einum stað
Þú tengir DK+ eða Payday einu sinni í stillingunum og Rektor sækir strax vörur, starfsmenn og eldri reikninga.
Vörulistinn verður að einingum
Vörurnar í bókhaldinu verða að einingum í Rektor sem þú setur beint á tilboð. Þú sérð hvaða vörur eru þegar tengdar einingum og hverjar eru nýjar.
- Úr DK koma vörurnar með vörunúmeri, verði, VSK, mælieiningu og kostnaðarverði.
- Sækir vörur úr Payday með söluverði án VSK. Kostnað getur þú sett á einingarnar eða skráð hann beint á verkefnið af reikningi frá birgi.
Starfsmenn og eldri reikningar
Tengingin sækir meira en vörur. Starfsmannalistinn nýtist til að bjóða teyminu inn og eldri reikningar gefa samhengi við viðskiptavinina.
- Þú hakar við starfsmenn úr DK, velur hlutverk og Rektor sendir þeim boð í tölvupósti.
- Eldri reikningar úr DK og Payday koma inn með viðskiptavinunum, svo saga hvers viðskiptavinar fylgir með.
Reikningar frá birgjum á verkefnin
Innkaup sem eru bókuð í DK eða Payday koma inn í Rektor. Þú setur efnið á rétt verkefni, þar sem það telst til kostnaðar og viðskiptavinurinn er rukkaður um það með álagningu.
- Rektor stingur upp á verkefninu og hvaða línur eru efni fyrir verkið, og þú staðfestir.
Nótan beint í bókhaldið
Hladdu upp nótu frá birgi eða láttu starfsmann taka mynd af henni í appinu. Rektor les nótuna, setur hana á verkefnið og sendir hana í DK eða Payday sem drög, svo bókarinn þarf ekki að slá hana inn.
- Í DK fylgir nótan sjálf með sem viðhengi.
- Nóta frá starfsmanni fer ekki í bókhaldið fyrr en þú hefur farið yfir hana og samþykkt.
Reikningurinn fer í bókhaldið
Þú velur línur og magn og sendir reikninginn í DK eða Payday með einum smelli, með bankakröfu á viðskiptavininn ef þú vilt.
- Þú tengir einingu við vöru í DK eða stofnar nýja vöru í DK beint úr Rektor. Tengingin vistast á einingunni svo þú gerir þetta bara einu sinni.
Staðan kemur til baka
Einu sinni á dag, snemma morguns, athugar Rektor alla reikninga sem voru sendir í bókhaldið. Þú getur líka sótt stöðuna strax, á reikningnum sjálfum eða á verkefninu.
- Þú kreditfærir reikning í DK eða Payday beint af reikningnum í Rektor og sækir kreditreikninginn sem PDF. Magnið fer þá aftur á verkefnið svo hægt sé að rukka það á ný.
- Þú færð tilkynningu þegar DK eða Payday skráir greiðslu.
- Ef tengingin við DK eða Payday hættir að virka færðu tilkynningu í Rektor og tölvupóst, svo reikningar hætti ekki að fara í bókhaldið án þess að þú vitir af því.
Líka án tengingar
Þú þarft ekki bókhaldstengingu til að nota Rektor. Tilboð, verkefni, tímaskráning og reikningsyfirlit virka eins.
- Einingarnar býrðu til í Rektor eða flytur inn úr Excel- eða Numbers-skjali með sniðmáti sem þú sækir í Rektor.

Náðu stjórn á rekstrinum
Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.
14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn