ReikningarReikningurinn er tilbúinn þegar verkinu lýkur
Þegar verkið er búið er reikningsgerðin oft eftir: fletta upp tilboðinu, muna aukaverkin, slá allt inn í bókhaldið. Í Rektor er þetta allt þegar komið: einingar, magn, aukaverk og verð.
Rukkaðu allt í einu eða í áföngum, sendu í DK eða Payday með einum smelli og fylgstu með greiðslustöðu án þess að opna bókhaldskerfið.

Það sem þú færð
- Reikningurinn byggir á tilboðinu og samþykktum aukaverkum, svo ekkert er slegið inn tvisvar
- Rukkaðu í áföngum: veldu línur og magn, Rektor man hvað er eftir
- Efni og útlagður kostnaður fara á reikninginn með þinni álagningu, beint af nótunni
- Sendu beint í DK eða Payday, með bankakröfu ef þú vilt
Hvernig þetta virkar
Reikningurinn byggir á verkefninu
Þú býrð til reikning beint á verkefninu. Línurnar koma úr einingum og magni verkefnisins, líka aukaverkum sem hafa bæst við, svo ekkert þarf að slá inn aftur.
- Tímavinna sem er rukkuð eftir unnum tímum fær stimplaða tímana sem eru ekki komnir á reikning, líka tíma umfram áætlun.
Efni og útlagður kostnaður
Skráðu innkaup fyrir verkefnið, til dæmis timbur frá BYKO, og rukkaðu þau áfram með álagningu. Hladdu upp nótunni og Rektor fyllir út birgi, dagsetningu og línur.
- Kostnaðarverðið fer með þinni álagningu á næsta reikning, sem ein lína eða hver vara fyrir sig.
- Starfsfólkið sendir nótur beint úr appinu á verkefnið og skrifstofan fer yfir þær áður en þær fara á reikning.
- Innkaupin reiknast með í kostnaði og framlegð verkefnisins.
Rukkaðu í áföngum
Þú þarft ekki að bíða eftir verklokum. Hver reikningur getur náð yfir valdar línur og hluta af magni, og Rektor heldur utan um hvað er eftir á hverri línu þar til allt er rukkað.
- Aukaverk sem bætist við eftir fyrsta reikninginn kemur fram sem eftirstandandi og fer á næsta reikning.
- Sama magnið er aldrei rukkað tvisvar.
Greiðslur og gjalddagar
Á hverjum reikningi skráir þú greiðslur og sérð hvað er eftir. Gjalddagi og eindagi koma úr reikningsstillingum fyrirtækisins og gjaldfallnir reikningar skera sig úr í listanum.
- Greiðslur að hluta leggjast saman og reikningurinn merkist sjálfkrafa greiddur þegar allt er komið.
- Þú lagar reikningstextann og dagsetningarnar á reikningnum sjálfum áður en hann fer í DK eða Payday, án þess að búa hann til upp á nýtt.
- Daglega yfirlitið á mælaborðinu sýnir hve mikið er í vanskilum og hve marga daga elsti reikningurinn er kominn fram yfir gjalddaga.
- Þú færð tilkynningu þegar DK eða Payday skráir reikning greiddan.
DK, Payday eða bara Rektor
Reikningurinn fer í DK eða Payday með bankakröfu ef þú vilt. Ef hvorugt er tengt verður reikningurinn til í Rektor og þú fylgist með greiðslunum þar.
- Reikninginn sækirðu sem PDF, beint úr DK eða Payday ef hann fór þangað, annars býr Rektor hann til með fyrirtækið þitt sem seljanda.
- Viltu fara yfir reikninginn í Payday fyrst fer hann þangað sem drög, og Rektor sér þegar þú hefur sent hann þaðan.

Náðu stjórn á rekstrinum
Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.
14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn