Þjónustusamningar
Þjónustusamningar
Sendu tilboð í reglubundna þjónustu, til dæmis vikulega eða mánaðarlega, með verði fyrir hvert skipti. Rektor sér um að raða heimsóknunum niður.
Þú sendir tilboðið einu sinni og öll skiptin fram undan fara sjálfkrafa á tímalínuna. Þú þarft ekki að gera sama tilboðið aftur mánuð eftir mánuð og engin heimsókn gleymist.

Það sem þú færð
- Hvaða tíðni sem er, á nokkurra vikna eða mánaða fresti
- Verð fyrir hvert skipti
- Viðskiptavinurinn samþykkir allan samninginn á netinu með einum smelli
- Hvert skipti birtist á tímalínunni og er tilbúið til reikningsgerðar
Hvernig þetta virkar
Tíðni og tímabil
Þú merkir tilboð sem þjónustusamning og velur hve oft þjónustan er veitt, til dæmis á 2 vikna eða 3 mánaða fresti, og hvort samningurinn gildir ótímabundið, í tiltekinn fjölda skipta eða til ákveðins dags.
Verð fyrir hvert skipti
Einingarnar á samningnum eru það sem er gert í hverri heimsókn, og verðið er gefið upp fyrir hvert skipti.
Samþykkt einu sinni
Viðskiptavinurinn fær þjónustutilboð í tölvupósti með PDF-skjali og tengli á síðu þar sem hann samþykkir allan samninginn í einu.
- Samþykki krefst kennitölu greiðanda, og staðfestingin segir hve mörg skipti verða skipulögð.
- Samþykktur samningur er vistaður sem PDF með skjölum samningsins, merktur með nafni, kennitölu og tíma samþykkis.
- Eftir samþykkt sýnir síðan viðskiptavininum síðasta og næsta skipti og framvindu þess skiptis sem er í gangi.
Skoðun og spjall við viðskiptavininn
Bókaðu skoðun hjá viðskiptavininum áður en þú sendir samninginn. Hann staðfestir tímann með einum smelli, og þið ræðið samninginn í spjalli á einum stað.
Skiptin verða til sjálfkrafa
Um leið og samningurinn er samþykktur verður hvert skipti að sínu eigin verkefni á tímalínunni, með réttu millibili.
- Samþykktu verkefni getur þú breytt í þjónustusamning. Verkefnið verður fyrsta skiptið og hin skiptin eru stofnuð strax.
- Settu verkþætti á samninginn og hvert skipti fær þá sjálfkrafa. Breytingar ná til skipta sem eru ekki hafin.
- Rektor AI stingur upp á því sem teymið gerir í hverju skipti, með áætluðum tímum, út frá samningnum og myndum af staðnum. Þú ferð yfir það og vistar.
Áætlun sem má breyta
Samningar breytast. Þú breytir tíðni, lokadegi, upplýsingum og verði án þess að hrófla við því sem þegar er lokið eða rukkað.
- Nýtt verð gildir strax fyrir öll skipti sem eru eftir.
Rukkað fyrir hvert skipti
Í yfirliti skiptanna sérðu hvað er reikningsfært og rukkar eitt skipti eða mörg saman.
- Einn reikningur fyrir öll valin skipti, sendur beint í DK eða Payday.

Náðu stjórn á rekstrinum
Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.
14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn