Undirverktaka
Undirverktaka
Framseldu verkefni til undirverktaka gegn þóknun. Undirverktakinn setur upp tilboðið, þú samþykkir það áður en það fer til viðskiptavinar, og báðir fylgjast með verkinu þar til því lýkur.
Þegar þú færð undirverktaka í verk fer mest fram í smáskilaboðum og símtölum. Í Rektor eru beiðnin, verðið og staðan á einum stað og bæði fyrirtækin sjá það sama.

Það sem þú færð
- Fyrirtækin ykkar eru tengd saman einu sinni
- Framseldu heilt verkefni til undirverktaka gegn þóknun
- Undirverktakinn staðfestir verkið og setur upp tilboðið til viðskiptavinarins
- Aðalverktaki fer yfir tilboð undirverktaka áður en það fer til viðskiptavinar
Hvernig þetta virkar
Tvö fyrirtæki, eitt verkefni
Bæði fyrirtækin nota Rektor. Þú finnur samstarfsfyrirtækið í Rektor og býður því tengingu, og um leið og það samþykkir geturðu valið það sem undirverktaka.
- Undirverktakinn vinnur í sama verkefninu og þú, svo ekkert þarf að slá inn aftur.
Framsal verkefnis
Aðalverktakinn framselur heilt verkefni til undirverktaka. Undirverktakinn sér verkefnið áður en hann svarar, svo hann veit hvað hann tekur að sér.
- Ef undirverktakinn hafnar getur hann sagt hvers vegna og þú getur framselt verkið til annars fyrirtækis.
- Hvort fyrirtækið sem er getur lokið samstarfinu um verkefnið. Aðalverktakinn tekur það aftur og teymi undirverktakans fer af því.
Tvær gerðir þóknunar
Aðalverktakinn fær þóknun af verkinu. Hún er fest þegar undirverktakinn staðfestir og breytist ekki eftir það.
- % af heildarverði verkefnisAðalverktakinn fær fast hlutfall af tekjum verksins.
- % af hagnaðiAðalverktakinn fær hlutfall af tekjum að frádregnum kostnaði.
Ekkert tilboð fer út án samþykkis aðalverktaka
Undirverktakinn setur upp tilboðið til viðskiptavinarins í framseldu verkefni, en hann sendir það ekki sjálfur. Aðalverktakinn fer yfir það fyrst.
- Tilboðið fer til viðskiptavinarins í nafni aðalverktakans, með hans merki og upplýsingum.
Undirverktaki getur líka boðið verk
Flæðið virkar í báðar áttir. Undirverktaki getur boðið eigið verkefni tengdum aðalverktaka og unnið það áfram sem undirverktaki hans.
Hvað hvort fyrirtæki sér og gerir
Undirverktakinn rekur verkið dag frá degi og aðalverktakinn fylgist með án þess að hringja.
- Starfsfólk undirverktakans stimplar sig inn og skráir framvindu í appinu eins og á eigin verkum.
- Aðalverktakinn sér stöðu og framvindu verkefnisins um leið og hún er skráð.
- Aðalverktakinn ræður hvort undirverktakinn má lesa og svara skilaboðum viðskiptavinarins.

Náðu stjórn á rekstrinum
Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.
14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn