TímalínaHaltu utan um allt ferlið á einum stað
Hvert samþykkt tilboð fer á tímalínuna. Ef það hefur enga dagsetningu bíður það í listanum yfir óskipulögð tilboð þar til þú dregur það inn á réttan dag.
Þegar áætlanir breytast færirðu verkið á annan dag. Verk sem eru komin fram úr áætlun verða rauð á tímalínunni og birtast í samantekt dagsins, svo þú getur brugðist við í tæka tíð.
Það sem þú færð
- Tengd tímaskráningu starfsfólksins
- Framvindan uppfærist sjálfkrafa
- Skoðanir og þjónustusamningar birtast við hlið verkefnanna
- Verkefni án tilboðs, eins og innri vinna og reikningsvinna, fara líka á tímalínuna
Hvernig þetta virkar
Vika eða mánuður
Tímalínan opnast á deginum í dag. Vikan sýnir hvert verk með dagsetningum og stöðu, mánuðurinn sýnir löng verk í heild sinni, og þú flettir ár aftur og ár fram í tímann.
- Rauðir dagar eru rauðir í hausnum með heiti dagsins, frá nýársdegi og páskum til 17. júní, frídags verslunarmanna og jóla.

Dragðu til að færa eða lengja
Þú endurskipuleggur með músinni. Áður en nokkuð er vistað sérðu dagsetningarnar fyrir og eftir breytingu og staðfestir.
- Dragðu stiku á nýjan dag til að færa verkið, eða dragðu hægri endann til að lengja það eða stytta.
- Samþykkt verk sem eiga enga dagsetningu bíða til hliðar þar til þú dregur þau inn á tímalínuna.
- Rektor spyr hvort viðskiptavinurinn eigi að fá tölvupóst með nýju dagsetningunum.
Hver er á hvaða verki
Þú getur hópað verkunum eftir starfsfólki, vinnuflokkum eða samstarfsfyrirtækjum, svo þú sérð hver er á hvaða verki.
- Settu saman vinnuflokka, til dæmis málara eða smiði, og settu heilan flokk á verk í einu í stað þess að bæta við einum og einum.
- Verk sem enginn er á lenda í sér hópi, og ef fyrirtækið notar ökutæki sést bíll dagsins.
Skoðanir og þjónustusamningar á sama stað
Tímalínan sýnir ekki bara verkefni. Allt sem er bókað á dagatalið er á einum stað, svo þú skipuleggur ekki tvennt á sama tíma.
- Skoðanir birtast sem eins dags merki í sama hópi og verkefnið sem þær tilheyra.
- Ef kveikt er á þjónustusamningum birtist hver heimsókn sem sitt eigið verk, merkt sem þjónustusamningur.

Náðu stjórn á rekstrinum
Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.
14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn