Eiginleikar

App fyrir starfsmenn

App fyrir starfsmenn

Eitt app fyrir starfsfólkið á verkstað: stimpla sig inn og út, skrá það sem er búið, taka myndir og sækja um frí. Hver og einn velur sitt tungumál.

Það sem þú færð

  • Haka við verkþætti og fylgjast með framvindunni
  • Taka myndir og skrifa athugasemdir sem fara beint í dagbók verksins
  • Senda nótur fyrir efniskaup beint á verkefnið
  • Skrá lokið magn á einingar þegar verkið er mælt í einingum

Hvernig þetta virkar

Frá boði að fyrstu stimplun

Stjórnandi býður starfsmanninum með tölvupósti og hann sækir Rektor í App Store eða Google Play. Hann skráir sig inn með netfanginu sem boðið fór á og lykilorðinu sem hann bjó til.

  • Appið er á íslensku, ensku, norsku, pólsku, rússnesku, litháísku, úkraínsku og spænsku. Hver starfsmaður velur sitt tungumál í stillingunum og fær tilkynningar á því tungumáli.
  • Þú velur tungumál boðsins fyrir hvern og einn, svo erlent starfsfólk fái boðið og leiðbeiningarnar á sínu tungumáli.
  • Þú þarft ekki að slá inn hvert netfang: sæktu starfsfólkið úr DK eða Payday, úr starfsmannalista eða launaseðlum, eða límdu inn lista, og stilltu hlutverk og laun hvers og eins áður en boðin fara.
  • Eða kveiktu á boðshlekk, prentaðu QR-kóðann og hengdu hann upp í vinnuskúrnum. Starfsfólkið skannar hann, stofnar aðgang og biður um aðgang, og þú samþykkir hvern og einn.

Heimaskjárinn

Heimaskjárinn breytist eftir því hvort starfsmaðurinn er stimplaður inn. Á morgnana sýnir hann daginn fram undan, á meðan unnið er sýnir hann verkefnið.

  • VerkefniðEiningar eða verkþættir til að skrá framvindu, myndir, athugasemdir teymisins og kort af verkstaðnum. „Fá leiðarlýsingu“ opnar leiðsögn í kortaappi símans.
  • VerklýsingStarfsmaðurinn les verklýsinguna í appinu og getur þýtt hana og verkþættina á sitt tungumál með einum smelli.
  • ÖkutækiValkvætt. Ef fyrirtækið notar ökutæki sér starfsmaðurinn bíl dagsins og bíllinn fer sjálfkrafa á stimplunina. Annars spyr appið hvaða ökutæki hann er á.
Heimaskjárinn

Framvinda, myndir og útstimplun

Starfsmaðurinn skráir hvað var unnið á meðan hann er á staðnum eða þegar hann stimplar út. Allt fer beint á verkefnið og í dagbókina.

  • VerkþættirHakaðu við það sem er búið eða skráðu tölu. Þegar síðasti verkþátturinn er hakaður spyr appið hvort ljúka eigi verkefninu.
  • VerkþáttasniðmátVerkþætti sem endurtaka sig, til dæmis við endurnýjun baðherbergis, vistar þú sem sniðmát og setur á nýtt verkefni í einu lagi.
  • Verkþættir frá Rektor AIÞegar tilboð er samþykkt stingur Rektor AI upp á verkunum sem teymið vinnur á staðnum, í réttri röð og með áætluðum tímum, út frá tilboðinu, verklýsingunni og myndum af staðnum.
  • MyndirTaktu mynd eða veldu úr myndasafni. Myndin tengist stimpluninni og birtist í dagbók verkefnisins.
  • NóturKeypti starfsmaðurinn efni fyrir verkið? Hann tekur mynd af nótunni eða velur PDF og Rektor les hana og bætir henni við kostnað verkefnisins.
Framvinda, myndir og útstimplun

Virkar án netsambands

Verkstaðir eru oft utan þjónustusvæðis. Appið geymir aðgerðir í símanum og sendir þær sjálfkrafa þegar samband næst, líka þótt appinu hafi verið lokað á meðan.

Frí og veikindi

Starfsmenn biðja um frí í appinu og stjórnendur afgreiða beiðnirnar í vefstjórnborðinu.

  • Stjórnandinn samþykkir eða hafnar, merkir hvort fríið er launað og getur skráð ástæðu höfnunar sem starfsmaðurinn sér.
  • Ef starfsmaður verður í fríi á meðan hann er skráður á verk varar Rektor stjórnandann við og stingur upp á öðrum í staðinn.
  • Hringi starfsmaður sig inn veikan skráir stjórnandinn fríið sjálfur í vefstjórnborðinu og það telst með í launaskýrslunni.

Náðu stjórn á rekstrinum

Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.

14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn