Allt sem verkið þarf, frá tilboði til reiknings

Hér sérðu hvað hver eiginleiki gerir og hvernig þeir vinna saman

Allir eiginleikar fylgja öllum áskriftarleiðum

Svona fer verk í gegnum Rektor

  1. Fyrirspurn berst
  2. Skoðun á staðnum
  3. Tilboð sent
  4. Viðskiptavinur samþykkir
  5. Verkið skipulagt
  6. Stimplað inn á staðnum
  7. Verkkaupinn fylgist með
  8. Reikningur í bókhaldið
  9. Hagnaðurinn gerður upp

Hvert skref tekur við þar sem það síðasta endaði. Fyrirspurnin verður að tilboði, samþykkt tilboð að verkefni og verkefnið að reikningi, svo ekkert er slegið inn tvisvar.

  1. Fáðu verkið

    Frá fyrstu fyrirspurn að samþykktu tilboði

    • Fyrirspurnir úr tölvupósti

      Tölvupóstur verður að fyrirspurn með tillögu að næsta skrefi

      Fyrirspurnir týnast auðveldlega í pósthólfinu. Rektor gefur þér netfang fyrir fyrirspurnir og hver póstur sem berst á það verður að fyrirspurn, með viðskiptavininum, heimilisfangi verksins og myndunum.

      • Rektor les hvaða verk er beðið um og stingur upp á næsta skrefi
      • Drög að tilboði, verðlögð eins og fyrri tilboðin þín
      • Svör viðskiptavinarins bætast við sömu fyrirspurn
      Myndband0:28
    • Skoðanir á verkstað

      Bókaðu skoðun áður en þú gerir tilboð

      Oft þarftu að sjá aðstæður áður en þú gerir tilboð. Þú bókar skoðunina á meðan viðskiptavinurinn er enn í símanum og hann fær tillögu að tíma í tölvupósti sem hann staðfestir með einum smelli.

      • Hentar tíminn ekki? Þú færir skoðunina á tímann sem viðskiptavinurinn skrifar í spjallið
      • Skoðanirnar á tímalínunni við hlið verkefnanna
      • Tilboðið byrjar þar sem skoðunin endaði
    • Fagleg tilboðsgerð

      Faglegt tilboð á nokkrum mínútum

      Þú skráir verðskrána einu sinni sem einingar, eða sækir hana úr bókhaldinu, og setur svo saman sundurliðað tilboð með því að velja einingar og magn. Viðskiptavinurinn fær tilboðið í tölvupósti með PDF í viðhengi.

      • Verð eftir einingum og framlegðin reiknuð um leið
      • Fast verð fyrir allt verkið þegar það á betur við en einingar
      • Rektor minnir viðskiptavininn á ósvöruð tilboð
      Myndband0:30
    • Tilboðssíða viðskiptavinar

      Viðskiptavinurinn samþykkir með einum smelli

      Tilboðið opnast á síðu í vafra með merki fyrirtækisins þíns, öllum liðum og heildarupphæð með VSK. Viðskiptavinurinn þarf hvorki að skrá sig inn né sækja app til að svara.

      • Samþykkt með einum smelli og kennitölu greiðanda til staðfestingar
      • Höfnun með ástæðu svo þú vitir hvað stóð í vegi
      • Þú sérð þegar tilboðið er opnað og færð tilkynningu þegar því er svarað
    • Þjónustusamningar

      Regluleg þjónusta, samþykkt einu sinni

      Fyrir þjónustu sem endurtekur sig, eins og slátt eða reglulegt viðhald, sendir þú eitt tilboð með tíðni og verði fyrir hvert skipti. Viðskiptavinurinn samþykkir einu sinni og öll skiptin raðast á tímalínuna.

      • Hvaða tíðni sem er, á nokkurra vikna eða mánaða fresti
      • Hvert skipti birtist á tímalínunni og er tilbúið til reikningsgerðar
      • Breyttu verði eða tíðni án þess að hrófla við því sem er búið
  2. Vinndu verkið

    Skipulag, starfsfólk og samskipti á meðan verkið er í gangi

    • Lifandi tímalína

      Öll verkin á einni tímalínu

      Hvert samþykkt tilboð fer á tímalínuna, þar sem þú sérð vikuna eða mánuðinn í heild. Þegar áætlun breytist dregur þú verkið á nýjan dag og velur hvort viðskiptavinurinn fái tölvupóst um það.

      • Verk sem eru á eftir áætlun skera sig úr
      • Sjáðu hver er á hvaða verki, eftir starfsfólki eða vinnuflokkum
      • Skoðanir og þjónustusamningar birtast við hlið verkefnanna
      Myndband0:29
    • App fyrir starfsmenn

      Starfsfólkið stimplar sig inn og skráir framvindu

      Starfsfólkið er með verkefnið, verklýsinguna og kort af verkstaðnum í símanum. Þar stimplar það sig inn, skráir hvað er búið og tekur myndir, og hver og einn notar appið á sínu tungumáli.

      • Haka við verkþætti og fylgjast með framvindunni
      • Senda nótur fyrir efniskaup beint á verkefnið
      • Virkar líka án netsambands
    • GPS-stimpilklukka

      Síminn minnir á stimplun við komu og brottför

      Gleymd stimplun kostar peninga. Rektor setur verkgirðingu um hvern verkstað, síminn minnir starfsfólkið á að stimpla sig inn við komu og út við brottför, og staðsetningin er vistuð við hverja stimplun.

      • Sjálfvirk innstimplun við komu, ef þú vilt
      • Yfirvinna reiknast sjálfkrafa út frá vinnuáætlun hvers starfsmanns
      • Enginn staðsetningarferill er skráður yfir daginn
      Myndband0:34
    • Verkdagbók

      Dagbók sem skrifar sig sjálf

      Enginn þarf að skrifa í dagbókina. Stimplanir, framvinda, myndir og minnispunktar starfsfólksins raðast sjálfkrafa á réttan dag, og þú sækir verkdagbókina sem PDF þegar verkkaupi eða eftirlitsaðili biður um hana.

      • Breytingar á stimplunum sjást, svo leiðréttingar eru rekjanlegar
      • Stöðubreytingar: verk hafið, lokið, opnað aftur
      • PDF-skjal fyrir valið tímabil með samtölu
    • Aukaverksbeiðnir

      Aukaverk samþykkt áður en vinnan hefst

      Aukaverk sem eru ekki skráð gleymast eða enda í ágreiningi. Þú skráir aukaverkið á verkefninu og viðskiptavinurinn fær beiðni með verði sem hann samþykkir rafrænt áður en vinnan hefst.

      • Viðskiptavinurinn samþykkir eða hafnar hverri línu fyrir sig
      • Samþykkt aukaverk bætast við verkið og fara sjálfkrafa á næsta reikning
      • Skráð í Rektor á vefnum, líka úr síma, eða með Rektor AI
      Myndband0:34
    • Yfirsýn verkkaupa

      Verkkaupinn sér stöðuna án þess að hringja

      Þegar tilboðið er samþykkt verður tilboðssíðan að framvindusíðu verksins. Þar sér verkkaupinn hvað er búið, dagsetningarnar og áætluð verklok, og framvindan kemur beint úr því sem starfsfólkið skráir.

      • Færri símtöl og skilaboð þar sem spurt er hvernig gangi
      • Skilaboð beint af síðunni sem þú svarar úr Rektor
      • Kostnaður og innri athugasemdir sjást aldrei
      Myndband0:32
    • Undirverktaka

      Framseldu verk til undirverktaka

      Samskipti við undirverktaka fara oft fram í símtölum og smáskilaboðum. Í Rektor framselur þú verkefnið gegn þóknun, undirverktakinn setur upp tilboðið og bæði fyrirtækin sjá sömu stöðu þar til verkinu lýkur.

      • Aðalverktaki fer yfir tilboð undirverktaka áður en það fer til viðskiptavinar
      • Þóknun sem hlutfall af verði eða hagnaði
      • Starfsfólk undirverktakans stimplar sig inn og skráir framvindu í sama verkefni
    • Vinnustaðaskírteini

      Vinnustaðaskírteini í símanum og á plasti

      Á vinnusvæðinu þarf starfsfólkið að bera vinnustaðaskírteini. Nafnið og upplýsingar fyrirtækisins eru þegar í Rektor, svo þú bætir bara við mynd, starfsheiti og kennitölu.

      • Skírteinið í appinu, líka án netsambands
      • QR-kóði sem sýnir strax hvort skírteinið sé gilt
      • Prentun á plastkort eða A4-örk
  3. Rukkaðu og sjáðu hagnaðinn

    Reikningar, bókhald og hvað verkið skilaði í raun

    • Reikningar

      Reikningurinn er tilbúinn þegar verkinu lýkur

      Þú þarft ekki að fletta upp tilboðinu og muna aukaverkin. Reikningurinn byggir á einingum verkefnisins, samþykktum aukaverkum og efniskaupum, og fer í DK eða Payday með einum smelli.

      • Rukkaðu í áföngum: veldu línur og magn, Rektor man hvað er eftir
      • Efni og útlagður kostnaður fara á reikninginn með þinni álagningu, beint af nótunni
      • Þú sérð hvað er greitt og hvað er komið fram yfir gjalddaga
    • DK- og Payday-tenging

      Reikningar fara beint í bókhaldið

      Þú þarft ekki að skipta um bókhaldskerfi. Tengdu DK eða Payday einu sinni og sæktu vörurnar sem einingar. Eftir það fara reikningar beint í bókhaldið og greiðslustaðan kemur til baka í Rektor.

      • Sæktu starfsmenn úr DK svo enginn þurfi að slá þá inn tvisvar
      • Nótur frá birgjum fara á rétt verkefni og í bókhaldið sem drög
      • Kreditfærðu reikning í DK eða Payday beint úr Rektor
      Myndband0:32
    • Hagnaður og stýring

      Sjáðu hagnaðinn áður en þú sendir tilboð

      Laun hækka og efni verður dýrara, svo verð sem skilaði hagnaði í fyrra gerir það kannski ekki í dag. Rektor reiknar áætlaðan hagnað á hverju tilboði út frá kostnaði eininganna og launum starfsfólksins og varar þig við ef framlegðin er lág.

      • Framlegðin fylgir verkinu frá tilboði til verkloka
      • Rektor lærir hve langan tíma hver eining tekur hjá þínu fyrirtæki
      • Sjáðu hve mikið þarf að hækka verð til að mæta launahækkun
    • Arðsemisskýrslur verkefna

      Framlegð, tímar og laun í skýrslum

      Skýrslurnar byggja á sömu stimplunum og einingum og allt annað í Rektor, svo tölunum ber alltaf saman. Þú sérð hvaða verk og viðskiptavinir skila mestri framlegð og launin eru tekin saman fyrir hvert launatímabil.

      • Verkefnaskýrsla: raun og áætlun hlið við hlið
      • Starfsmannaskýrsla: tímar, yfirvinna og verðmæti hvers starfsmanns á tímabili
      • Launaskýrsla með yfirvinnu, launuðu fríi og rauðum dögum

Rektor AI í gegnum allt ferlið

Spyrðu eða biddu um aðgerð á venjulegu máli. Þú staðfestir alltaf fyrst.

  • Rektor AI

    Spyrðu um reksturinn og fáðu svar strax

    Svörin við spurningum um reksturinn eru dreifð um skýrslur og töflur. Spyrðu Rektor á venjulegu máli og hann finnur svarið í gögnunum þínum, eða biddu hann að gera eitthvað fyrir þig, til dæmis búa til tilboð eða bóka skoðun.

    • Spyrðu á íslensku, ensku eða öðru tungumáli
    • Hengdu við verðlista, verklýsingu eða teikningu og hann les skjalið
    • Talaðu í stað þess að skrifa
    Myndband0:33

    Til dæmis

    • Hverjir eru mættir í dag?
    • Hvaða verk eru á eftir áætlun?
    • Hvaða verk skiluðu mestri framlegð í ár?
    • Bókaðu skoðun á Álfhólsvegi á fimmtudaginn klukkan tíu

Náðu stjórn á rekstrinum

Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.

14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn