Eiginleikar
AukaverkAukaverk eru ekki gjöf
Aukaverk sem eru ekki skráð gleymast, eða það sem verra er, enda í ágreiningi. Þú vinnur verkið en verkkaupinn man ekki eftir að hafa samþykkt það.
Með Rektor skráir þú aukaverk á staðnum og verkkaupi samþykkir rafrænt. Allt er skjalfest og bætist sjálfkrafa við verkið.

Það sem þú færð
- Skráð í Rektor á vefnum, líka úr síma, eða með Rektor AI
- Viðskiptavinurinn samþykkir rafrænt áður en vinnan hefst
- Samþykkt aukaverk bætast við verkið og fara sjálfkrafa á næsta reikning
- Framvinda og verkstaða uppfærast með viðbótareiningunum
Hvernig þetta virkar
Þrjár leiðir til að bæta við
Á verkefninu velur þú einingar, magn og afslátt fyrir aukaverkið og svo hvað verður um tilboðið.
- Bættu einingunum bara við verkefnið svo teymið geti skráð framvindu á þær, án þess að breyta tilboðinu.
- Uppfærðu tilboðið og reikninginn strax, án samþykkis viðskiptavinarins.
- Eða sendu viðskiptavininum beiðni um samþykki. Línurnar fara á tilboðið þegar hann samþykkir.

Beiðnin til viðskiptavinarins
Þegar samþykkis er þörf fær viðskiptavinurinn skýra beiðni með verði og svarfresti í stað munnlegs loforðs.
- Á tilboðssíðunni samþykkir hann eða hafnar hverri línu fyrir sig, eða samþykkir allar í einu.
Á verkinu og á reikningnum
Samþykkt aukaverk verður hluti af verkinu, eins og það hefði verið í upphaflega tilboðinu.
- Nýju einingarnar birtast í framvindu verkefnisins og teymið skráir magn á þær í appinu.
- Tilboð verkefnisins uppfærist og aukaverkið fer með á næsta reikning.
- Þú getur bætt við þótt reikningur hafi þegar verið sendur.

Náðu stjórn á rekstrinum
Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.
14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn