Um Rektor
Byggt fyrir verktaka - Gert til að einfalda reksturinn
Rektor er heildstætt rekstrarkerfi fyrir verktaka og þjónustufyrirtæki með 1–50 starfsmenn. Kerfið tengir saman tilboðsgerð, verkefnastýringu, tímaskráningu og kostnað á einum stað. Þannig hafa eigendur og stjórnendur rauntíma yfirsýn yfir hagnað hvers verkefnis og vita nákvæmlega hvar boltinn liggur hverju sinni.
Rektor kemur í staðinn fyrir bútasauminn sem margir minni verktakar styðjast við: Excel-skjöl, minnisbækur, símtöl og tilfinninguna. Með vefviðmóti fyrir stjórnendur og einföldu appi fyrir starfsmenn úti á verkstað, myndar Rektor einn samtengdan verkferil – allt frá fyrstu fyrirspurn til lokareiknings.
Hvernig Rektor varð til
Hugmyndin að Rektor kviknaði hjá öðrum okkar þegar kvöldin og næturnar voru farnar að fara í tilboðsgerð, raða upp dagskrá vikunnar og passa að samskiptin við viðskiptavinina sætu ekki á hakanum. Tilboð voru smíðuð í Excel, vinnutími skráður á blað og reikningar unnir eftir minni. Fagið sjálft var í góðu lagi – en rekstrarhliðin var á hvolfi.
Við stofnuðum Rektor til að laga þetta. Við vildum ekki búa til almennt verkefnastjórnunarkerfi, heldur hugbúnað sem aðlagast að þér. Hver einasti eiginleiki kerfisins er sprottinn úr samtölum við alvöru verktaka sem nota appið daglega.
Okkar sýn
Verktakar eiga að vita hvort verkefni sé að skila hagnaði áður en tilboð er sent – ekki síðar. Þeir eiga að geta fylgst með starfsmönnum sínum og séð hvernig verkefnið gengur í rauntíma. Viðskiptavinur á að geta fylgst með framvindunni án þess að þurfa að hringja.
Beintenging við bókhaldskerfi
Hafa samband
Viltu sjá hvernig Rektor smellur inn í þinn rekstur? Bókaðu 20 mínútna kynningu eða sendu okkur línu.