Eiginleikar

VerkdagbókDagbók sem skrifar sig sjálf

Allt sem gerist á verkstað skráist í dagbókina um leið: hver stimplaði inn, hvað var unnið, myndir dagsins, athugasemdir, hvenær verkið hófst og hvenær reikningur var gefinn út.

Veldu tímabil og sæktu verkdagbókina sem PDF, tilbúna til að senda á verkkaupa, eftirlitsaðila eða tryggingafélag.

Það sem þú færð

  • Stimplanir teknar saman á dag með fjölda starfsmanna og klukkustundum
  • Myndir og minnispunktar úr appinu vistast á réttum degi
  • Stöðubreytingar: verk hafið, lokið, opnað aftur
  • PDF-skjal fyrir valið tímabil með samtölu

Hvernig þetta virkar

Það sem skráist sjálfkrafa

Enginn þarf að skrifa í dagbókina. Hún fyllist af því sem gerist í appinu og í vefstjórnborðinu, flokkað eftir degi með nýjustu dagana efst.

  • Stimplanir hvers dags í einni línu með fjölda starfsmanna og klukkustundum, og minnispunktum og myndum starfsfólksins.
  • Þegar stimplun er breytt, eytt eða skipt sést það í dagbókinni, svo leiðréttingar eftir á eru rekjanlegar.

Athugasemdir á verkefnum

Athugasemdir eru fyrir fyrirtækið eitt og viðskiptavinurinn sér þær aldrei. Stjórnandinn velur hverjir sjá hverja athugasemd, og þær birtast í dagbókinni.

  • Starfsmenn skrifa athugasemdir úr appinu á verkefni sem þeir eru skráðir á, og verkefnisstjórinn fær tilkynningu á vefnum.

Verkdagbók í PDF

Hvert verkefni á sína eigin dagbók sem þú flytur út sem verkdagbók í PDF, til dæmis fyrir verkkaupa eða eftirlitsaðila.

  • Fyrir hvern dag: tafla með starfsmönnum, tímum og klukkustundum, framvinda dagsins, minnispunktar starfsmanna og myndir.
  • Skjalið er ætlað viðskiptavininum, svo innri gögn eins og athugasemdir, tilboð og reikningar fylgja ekki með.

Náðu stjórn á rekstrinum

Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.

14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn