Raddskipun
Rektor skilur þig betur en þú heldur
Þú þarft ekki að læra á Rektor — segðu bara hvað þú þarft og Rektor sér um það. Hvar sem þú ert — á verkstað, á ferðinni eða á skrifstofunni.
Hvort sem þú ert að senda tilboð eða aukaverk á verkefni. Segðu einfaldlega: "Rektor, bættu við 2 tímum í málun á Hæðasmára sem aukaverk" og það skráist sjálfkrafa inn.
- Radd- og textaskipanir fyrir allar aðgerðir kerfisins
- Virkar á íslensku og ensku
- Notaðu það á verkstað, í bílnum eða á skrifstofunni
Hvernig þetta virkar
Talaðu eða skrifaðu
Biddu Rektor um að gera aðgerðina fyrir þig. Gervigreindarspjallmenni Rektor hefur aðgang að öllum aðgerðum kerfisins.
Rektor framkvæmir
Kerfið túlkar skipunina þína og framkvæmir aðgerðina — skráir tíma, býr til aukaverksbeiðni, sendir tilboð eða hvað sem er annað.
Tafarlaus staðfesting
Þú færð staðfestingu samstundis á því sem gert var. Ef Rektor þarf nánari skýringar þá spyr hann — alveg eins og vinnufélagi myndi gera.
Tengdir eiginleikar
App fyrir starfsmenn
Starfsmenn stimpla sig inn, skrá einingar og bæta við myndum — allt úr símanum. Sjálfvirkar áminningar um inn- og útstimplun. Í boði á 5 tungumálum.
GPS stimpilklukka
Starfsmenn stimpla sig inn og út í gegnum farsímaforritið með GPS-staðfestingu. 200m sýndargirðing í kringum hvern verkstað tryggir að vinnustundir séu aðeins skráðar á staðnum.
Aukaverksbeiðnir
Sendu aukaverk til samþykktar áður en hafist er handa - svo það verði enginn ágreiningur við lok verks.